Síðasta ástin fyrir pólskiptin

mánudagur, ágúst 30, 2004

Þessari færlsu hefur verið breytt þar sem Gu... ég meina Fr.X vildi ekki láta nafns síns getið. Þannig að því verður breytt. Hérna er ritskoðaða útgáfan:

Hafið þið litið út um gluggann? Ég var hrædd um að vera rotuð af fljúgandi trjágrein eða kafna í einum af fjúkandi plastpokunum sem eru út um allt. Eitthvað fyrir þá sem elskuðu American Beauty! En já, sjitt piss fokk könt hvað það er komið mikið haust! Alltof mikið finnst mér, ég meina það er ennþá ágúst í tvo daga í viðbót!!! Sparaðu þetta, veðurguð! Annars er þetta nú allt í lagi, ég tók bara fram lopapeysuna og setti Coldplay á fóninn þannig að ég er í frekar góðum málum. Lofa engu þegar ég þarf að fara út samt, held að ég skipti þá pilsinu út fyrir buxur, þetta var orðið svolítið vandræðalegt í strætóskýlinu og Lækjargötunni á leiðinni heim. Liggur við að það sé kominn tími til að telja niður í jólin, líklegast bara svona mánuður þangað til búðirnar fara að setja upp jólaskrautið.

Annars var skólinn brillíant eins og eiginlega alltaf, þessa sex skóladaga sem ég hef verið í honum. Óendanlega hláturskast dagsins kom klukkan að verða þrjú og Axel, Sögu 103 félagi minn, Fr.X og Báru, á ALLA sök á því. Tíminn (sem var tvöfaldur) hafði verið lengsti tími mannkynssögunnar í svona 50 mín þegar kennarinn fór skyndilega að tala um egglos hjá ísaldarkonum. Hann var aðeins búinn að spjalla um þetta þegar áðurnefndur töffari hallaði sér afturábak í sætinu og spurði kennarann með sinni allra svölustu rödd hvað egglos væri eiginlega. Það heyrðist svona fliss og niðurbældur hlátur frá hinum nemendunum (þá er ég að tala um þá sem ennþá voru vakandi) þegar sögukennarinn fór að reyna að útskýra hvað egglos væri og hvernig það færi fram. Svo í hléinu á milli tímanna lét Fr.X alla í kringum okkur vita að það hefði verið einhver strákur með okkur í sögutíma sem vissi ekki hvað egglos væri. Svo var þetta rætt aðeins og hún klikkti út með því að segja á hæstu nótunum "ÞÚ VEIST, HVER VEIT EKKI HVAÐ EGGLOS ER???" og við hristum allar (eða öll, Guðmundur stóð víst þarna líka hjá) hausinn í meðaumkun. Föttuðum aðeins seinna að greyið strákurinn sat víst þarna á næst bekk við okkur, hafði bara verið falinn bakvið haug af fólki sem stóð rétt hjá. Það var náttúrulega mjög fyndið þannig að við orguðum af hlátri en hann grúfði sig bara enn meira niður í blaðið sitt. Seinna um daginn fórum við í Kringluna til að fá okkur að borða eitthvað og hvað heldurðu, rekumst við ekki á Axel. Það kom af stað nýrri hrinu af Axel-bröndurum eins og "Axel, þú ert beðinn um að hitta vinkonur þínar hjá kvensjúkdómalækninum á fyrstu hæð" og "Axel, viltu vera faðir barnanna minna?". Góðir tímar.... í dag þ.e.a.s.

Annars lítið spennandi, er að halda áfram að lesa Kaldaljós og bíða eftir að hún verði búin...

Adios, amigos!

Já! Alveg rétt samt, for á Super Size Me í gær og vá hvað hún er þétt! Ég sá ekki eftir þessum 800-kalli.


Diljá og Melkorka gesprochen an 18:49

♣♣♣♣

laugardagur, ágúst 28, 2004
Bylting í bloggum (hjá mér allaveganna)

Jæja þá er ég hætt við fólk.is fyrir fullt og allt. Það var orðið allt yfirfullt af fólki á aldrinum 9-13 ára og ég get ekki alveg höndlað svoleiðis blogg félagsskap. Maður verður nú að hafa smá sjálfsvirðingu þó það sé bara á netinu!

Ég byrjaði í skólanum á mánudaginn síðasta (s.s. 23.08), stökk á fætur kl. korter í sjö með kvíðahnút í maganum viss um að núna væri dómsdagur kominn og ég yrði að hlaupa fyrir lífi mínu í enda dagsins með síðhærða fjórða árs nema með tjöru, fiður og röndótta trefla á eftir mér. En ótrúlegt en satt gerðist ekkert svoleiðis og ég heyrði bara svona tvisvar einhvern segja mjög hátt eitthvað í sambandi við busa um leið og ég gekk framhjá. Og það finnst mér frekar vel sloppið og ég fór sátt heim. Held að það gæti hafa verið eina skiptið síðan í sex ára bekk sem ég raunverulega hlakkaði til þess að mæta í skólann, ég veit að þetta hljómar hræðilega en það er satt. Ég og vampírubrandarinn minn höfum gert mikla lukku saman held ég.... allaveganna hlógu margir (reyndar eftir að hafa sagt "OOOOJJJJJ, þetta er það ógeðslegasta sem ég hef nokkurntímann heyrt").

Vikan hefur líka gengið mjög vel, held samt að ég hafi aldrei þurft að muna svona mörg nöfn í einu á fimm dögum. Ég er reyndar ekki byrjuð að reykja hass, fá mér dredda eða ganga um í náttfötunum í skólanum þannig að ég get kannski ekki kallað sjálfa mig MH-ing alveg strax. En þetta kemur allt saman!

Finn samt strax hvernig maður fær ósjálfrátt meiri fordóma gegn Verzlingum bara eftir þessa einu viku. En það er gagnkvæmt þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur. Bara að ganga um Kringluna þá lyfta Verzlingarnir augabrúnunum hneykslanlega þegar þeir ganga framhjá og það hnussar í MH-ingunum um leið. Ég hef verið í skólanum í núna sex daga en ég er byrjuð að hnussa sjálf þegar ég sé Dieselbuxur og stífmáluð andlit. Ég veit, ég veit, MH á einmitt að vera svo fordómalaus skóli en hvaða kjaftæði er það? Ég meina, ef ég sem busi sest t.d. niður í Norðurkjallara þá geta vinir mínar farið að leita að líkinu af mér í ruslagámum og yfirgefnum húsum í nágrenni skólans. En ég meina, hvað er lífið án smá fordóma?

Seinna...


Diljá og Melkorka gesprochen an 13:27

♣♣♣♣

{ Búið&Gert }

ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005


{ Er að }

lesa; Frú Pigalopp og jólapósturinn
hlusta á: Simon & Garfunkel - America
elska: snjó
hata: ekki snjó
láta mig langa í: hvít jól
forðast: að falla í Lan103


{ Links 2 3 4 }

Arnar Pétursson
Ásrún Magnúsdóttir
Berglind Pétursdóttir
Dagný Ósk Björnsdóttir
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Dr.Sindri Sverrisson
Elías Þórsson
Elín Margrét Rafnsdóttir
Elísabet Anna
Finnur Kári
Fróði Frímann
Gró Einarsdóttir
Halla Þórlaug
Hildur Rudolfsdóttir
Hlynur Ólafsson
Inga Auðbjörg
Íris Saara Karlsdóttir
Jana Maren
Jóhanna Margrét
Jóhannes Rokk
Jón Helgi Hólmgeirsson
Jón Kristján Kristinsson
Júlíana Sól
Katrín Björgvinsdóttir
Katrín Lilja Ólafsdóttir
Melkorka Rut
Mist Hálfdanardóttir
Olga Margrét Cilia
Salóme Rannveig
Sólveig Ragna Jónsdóttir
Stefanía Bjarney
Sunna Þórsdóttir
Tumi Karlsson
Úlfur Artí
Vala Ósk Gylfadóttir
Vilborg Ása Dýradóttir
Þórdís Erla Zoega