Síðasta ástin fyrir pólskiptin

þriðjudagur, september 21, 2004
Vei!

Ég ætla fyrst af öllu að pirra mig á orðinu 'vinafólk'. Ég þoli ekki það orð. Vinafólk? Ég hef mest heyrt þetta notað yfir pör, þau eru ekki vinir einhvers heldur vinafólk. Ekki myndi ég vilja í framtíðinni þegar ég er komin með fínan kærasta og hund og Opel Astra að vinir mínir myndu tala um mig og hann sem vinafólk sitt. Það væri eins og við værum ein og sama manneskjan. Þó að maður búi með einhverjum þá þurfið þið ekki að vera talin sem sama manneskja. Þetta fer óstjórnlega í taugarnar á mér. Ég vil vera vinkona vina minna og ekki vinafólk og hana nú!

Annars er allt mjög hresst. Busadagurinn í MH var skárri en ég átti von á þótt ég fái ennþá klígju þegar ég hugsa um íþróttaráðið. Ballið var hins vegar magnað! Gunna bauð í fyrirpartí sem átti að vera frekar lítið en endaði með því að fá hálft ballið heim til sín. Hún og einhverjir nokkrir aðrir urðu svo eftir að ryksuga og brosa þegar mamma hennar og pabbi komu heim. Frekar hresst. Ballið sjálft var geggjað ýkt ógó vírað stuð. Mammút voru náttúrulega illa þéttir (nema gítarleikarinn, hann er algjört rusl oj... haha). Búdrýgindi voru hressir og Svitabandið líka en Botnleðja voru ekki alveg jafn þéttir. Þá var það bara Dj-inn á efri hæðinni sem var vel í stuði. Hitti fullt af fólki sem þekkti mig en ég þekki ekki og ég heilsaði líka mörgum sem ég þekki en þekkja mig ekki. Augljóslega mjög hresst. Kl.1 dreif ég mig svo heim sökum illilegrar þreytu í hnjám vegna of mikils dans og aumar hendur af rassaklípi.

Bróðir minn kvæntist síðan á laugardaginn. Frekar hresst brúðkaup fyrir kannski utan það að ég og einn... já einn... frændi brúðarinnar vorum líklegast þau einu sem voru ekki annað hvort kát, drukkin eða pissfull. Öll systkini mín, foreldrar og amma flokkast undir það síðasta af þessu þremu sem var frekar fyndið þangað til amma mín kom og greip í mig, kyssti mig og sagði svo "Amma þín er orðin BLINDfull, Diljá mín" og ég svona "Allt í lagi amma mín, af hverju ertu með svona stóran munn?". Reyndar sá ég hana ekkert eftir það þannig að kannski er hún ennþá þunn heima. Amma partíljón!

Ég keypti mér miða á Prodigy fyrir einum og hálfum tíma... það var eftir að ég byrjaði að skrifa þetta blogg, eftir að ég byrjaði er ég búin að borða, vaska upp, poppa, horfa á Gilmore Girls, kaupa mér nammi og gos á Esso og já... kaupa mér miða á Prodigy. Vona reyndar að þeir taki ekkert alltof mikið af nýju plötunni því ég er ekkert búin að heyra af henni nema Girls. Það er reyndar frekar hresst lag en ég hef heyrt að restin sé eitthvað rusl. Ég vil helst fá þessa gömlu góðu eins og No good, Breathe, Firestarter og Smack my bitch up.

Farin að taka vélmennadansinn(....breathe with me!)




Diljá og Melkorka gesprochen an 20:09

♣♣♣♣

miðvikudagur, september 08, 2004
Busaferðin

Myndirnar úr busaferðinni eru komnar hingað þannig að þeir sem ekki eru búnir að sjá þær geta kíkt. Nema þú sért mamma mín, þá er línkurinn bilaður.

Annars var þetta mjög þétt ferð, myndirnar munu líklegast segja sitt. En ég ætla í rúmið, blogga meira um ferðina og tónleikana sem ég var á og skólann og vinina og allt saman seinna! Skal samt uppfæra hérna til hliðar mér til skemmtunar!


Diljá og Melkorka gesprochen an 00:17

♣♣♣♣

fimmtudagur, september 02, 2004

Hahahaha nú míg ég í buxurnar af hlátri!!!! Eða pilsið reyndar en það er ekki pointið. Ég og Melkorka vorum að taka strætó heim úr skólanum áðan og svo stoppaði strætóinn á ljósum og allt í einu kom svona stór rúta og stoppaði við hliðina á okkur. Hún var full af strákum/mönnum í svona íþróttabúning og Melkorka bara "Hey, fótboltalið!". Svo snéri einn strákurinn sér að okkur eitthvað og eftir að við vorum búnar að nikkann og blikkann og hann okkur þá lagðist Melkorka flöt á rúðuna og gerði svona "Football? Football? Are you in football?" með vörunum. Það var bara þá sem ég pikkaði í hana og benti henni aftan á búningana hjá félögum hans þar sem stóð með stórum stöfum 'ÍSLAND'. Undarlegt.

Annað sniðugt í dag var:

1. Zakki og Guðrún í tölvusnúningsstólarallíi, sérstaklega snilldarleg byrjunin hjá Zakka. Bravó!
2. Kringluferðin með Kristjáni. Góðir tímar
3. Þegar Ásrún sagði Kani og við Símon fengum tvo slagi. Hah!
4. Smákökur og Fjörmál á Stjörnutorginu..... þetta er að verða hefð
5. Appelsín í poka
6. "Er hat fünf Kinder und ist verheiratet"
7. "ÞÚ ert stelpuhöztler!"

Nenni ekki að blogga meira, ætla að fara að gefa Melkorku að borða þegar hún er hætt að spila á rafmagnsgítarinn minn sem ég á ekki.

Håde!


Diljá og Melkorka gesprochen an 18:05

♣♣♣♣

miðvikudagur, september 01, 2004
Fyrsti sept!

Jájá nú ert stutt í heimsfrægð mína! Ég ásamt öðrum vorum valin... af stórum hóp manna... til að leika stadista í Strákarnir Okkar. Þið sem lömduð mig með naglaspýtu þegar ég var yngri eigið eftir að sjá eftir því þegar ég verð orðin fræg (já, ég er að tala um þig Melkorka!). Annars stungum við reyndar af þegar við vorum búin að vera þarna í svona klukkutíma og leikstjórinn reyndi að hughreysta okkur með því að segja að það væru 'aðeins' 40 mínútur eftir.

Annars var nú bara eðlilegur skóli í dag, tvöföld þýska í fyrsta tíma með alveg dýrvitlausan kennara en það var samt ágætt. Eftir það íslenska með kennarann sem segir alltaf mikið og miklu með í-i og ég læt það fara illa mikið í taugarnar á mér. Stærðfræðikennarinn, kynlífssveltur og einmana, eins og einhversembyrjarábé orðaði það, var svo í síðasta tíma. Sem semsagt þýðir að ég horfði út í loftið og krotaði í bókina mína í klukkutíma.

Svo er busaferðin um næstu helgi, það verður fjör. 300 sextán ára vitleysingar og einstaka siðgæðisverðir... það hlýtur bara að heppnast vel! Reyndar á að fara með þá sem vilja á hestbak sem eru eiginlega flestir (allaveganna sem ég hef talað við) og ég veit ekki alveg hvar þeir ætla að fá svona 200 hesta í einu . Svo er busaballið á fimmtudaginn náttúrulega (dagurinn reyndar líka en jæja) og það er hafin dauðaleit að húsnæði fyrir mig og mína. Einhver sem á stórt hús og lítið af foreldrum, endilega skrifið í commentin! Reyndar heyrði ég að einhver strákur á þriðja ári ætlaði að halda partí fyrir allar busastelpurnar þannig að kannski maður kíki þangað, versta er bara að það tæki svo langan tíma að meika strákavini okkar þangað til þeir litu út eins og stelpur. Eða suma allaveganna, aðrir þurfa ekki jafn mikla hjálp :D

Svo er það bara sögutími á morgunn, Guðrún og Bára!

Ég er tóm...


Diljá og Melkorka gesprochen an 18:18

♣♣♣♣

{ Búið&Gert }

ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005


{ Er að }

lesa; Frú Pigalopp og jólapósturinn
hlusta á: Simon & Garfunkel - America
elska: snjó
hata: ekki snjó
láta mig langa í: hvít jól
forðast: að falla í Lan103


{ Links 2 3 4 }

Arnar Pétursson
Ásrún Magnúsdóttir
Berglind Pétursdóttir
Dagný Ósk Björnsdóttir
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Dr.Sindri Sverrisson
Elías Þórsson
Elín Margrét Rafnsdóttir
Elísabet Anna
Finnur Kári
Fróði Frímann
Gró Einarsdóttir
Halla Þórlaug
Hildur Rudolfsdóttir
Hlynur Ólafsson
Inga Auðbjörg
Íris Saara Karlsdóttir
Jana Maren
Jóhanna Margrét
Jóhannes Rokk
Jón Helgi Hólmgeirsson
Jón Kristján Kristinsson
Júlíana Sól
Katrín Björgvinsdóttir
Katrín Lilja Ólafsdóttir
Melkorka Rut
Mist Hálfdanardóttir
Olga Margrét Cilia
Salóme Rannveig
Sólveig Ragna Jónsdóttir
Stefanía Bjarney
Sunna Þórsdóttir
Tumi Karlsson
Úlfur Artí
Vala Ósk Gylfadóttir
Vilborg Ása Dýradóttir
Þórdís Erla Zoega