Síðasta ástin fyrir pólskiptin

föstudagur, mars 18, 2005
Hand in hand is the only way to land

Eftir að hafað verið feisuð illilega af Katrínu á kommentakerfinu af öllum stöðum þá ætla ég að blogga aftur.

Það sem fer í taugarnar á mér:
1) Þessi umræða: "Sko, Íslendingar, af hverju þurfum við alltaf að kalla allt frægt fólk sem hefur millilent hérna einu sinni Íslandsvini , mímímí." Halló, útaf því að þetta er Ísland og allir eiga að elska okkur. Það er svo góður húmor að spyrja "How do you like Iceland?", ég spyr alla útlendinga sem ég hitti að þessu því að það er svo mikil klisja (klysja?) og þess vegna er það svo fyndið.
2) Formleg íslenska sem gerir ekkert gagn nema að gera stutt mál langdregið. Ég er ekki amma mín og vil ekki tala eins og hún. Ég meina, ég vil ekki tala rangt mál en sumt er svo mikill óþarfi, það er alveg hægt að tala rétt mál án þess að lengja allt svona. Dæmi:
Það vegur einfaldlega ekki þungt í þeim efnum = Það skiptir engu
Átti orðastað við = Talaði við
Frá mínum bæjardyrum séð = Mér finnst
Það er einróma álit okkar = Okkur finnst

Oh þetta er samt svo mikið skot á fullt af vinum mínum, vonandi verða þau ekki brjáluð og stinga mig
3) Hvað það er ekki hægt að tala við bestu vini sína á msn. Því betri sem vinir manns eru því minna er hægt að segja við þá á msn. Ég á löng og góð samtöl við manneskjur á msn sem ég tala nánast aldrei við í raunveruleikanum á meðan samtölin við bestu vini mína eru bara eitthvað rugl því við höfum ekkert að segja. Dæmi:

druslufugl.blogspot.com says: hommi
Thordish (r) says: lessa
druslufugl.blogspot.com says: bara fyrir þig
Thordish (r) says: ....heldurðu að ég sé hommi? :$
Thordish (r) says: ... af því að ég er það!
druslufugl.blogspot.com says: ó ég líka
druslufugl.blogspot.com says: nei djók
druslufugl.blogspot.com says: ef þú ert að djóka
druslufugl.blogspot.com says: þá er ég líka að djóka
Thordish (r) says: ... ég er að DJÓKA!
druslufugl.blogspot.com says: já ok, ég líka
Thordish (r) says: hmm....
druslufugl.blogspot.com says: jájájá...

Ugh ég er svo mikill nöldrari. Samt er ég í nokkuð góðu skapi. Lífið, ég fíla það.

Tónlist:
Billy Joel - Just The Way You Are
Simon and Garfunkel - America
Armand Van Helden - My My My

Símtal:
Þórdís: Jæja, ég ætla að fara í bað
Ég: Já, ok
Þórdís: Ég er sko allsber
Ég: Ugghh, Þórdís!
Þórdís: HVAÐ? Ég er búin að vera það í 20 mínútur
Ég: Bless


Diljá og Melkorka gesprochen an 19:10

♣♣♣♣

{ Búið&Gert }

♣ágúst 2004
♣september 2004
♣október 2004
♣nóvember 2004
♣desember 2004
♣janúar 2005
♣febrúar 2005
♣mars 2005
♣apríl 2005
♣ágúst 2005
♣september 2005
♣október 2005
♣nóvember 2005
♣desember 2005


{ Er að }

lesa; Frú Pigalopp og jólapósturinn
hlusta á: Simon & Garfunkel - America
elska: snjó
hata: ekki snjó
láta mig langa í: hvít jól
forðast: að falla í Lan103


{ Links 2 3 4 }

♣ Arnar Pétursson
♣ Ásrún Magnúsdóttir
♣ Berglind Pétursdóttir
♣ Dagný Ósk Björnsdóttir
♣ Dóra Björt Guðjónsdóttir
♣ Dr.Sindri Sverrisson
♣ Elías Þórsson
♣ Elín Margrét Rafnsdóttir
♣ Elísabet Anna
♣ Finnur Kári
♣ Fróði Frímann
♣ Gró Einarsdóttir
♣ Halla Þórlaug
♣ Hildur Rudolfsdóttir
♣ Hlynur Ólafsson
♣ Inga Auðbjörg
♣ Íris Saara Karlsdóttir
♣ Jana Maren
♣ Jóhanna Margrét
♣ Jóhannes Rokk
♣ Jón Helgi Hólmgeirsson
♣ Jón Kristján Kristinsson
♣ Júlíana Sól
♣ Katrín Björgvinsdóttir
♣ Katrín Lilja Ólafsdóttir
♣ Melkorka Rut
♣ Mist Hálfdanardóttir
♣ Olga Margrét Cilia
♣ Salóme Rannveig
♣ Sólveig Ragna Jónsdóttir
♣ Stefanía Bjarney
♣ Sunna Þórsdóttir
♣ Tumi Karlsson
♣ Úlfur Artí
♣ Vala Ósk Gylfadóttir
♣ Vilborg Ása Dýradóttir
♣ Þórdís Erla Zoega